Atvinnulíf

Atvinnulíf

Samkeppnishæfni hefur á síðustu árum orðið eitt helsta viðfangsefni Evrópusambandsins. Skýrsla Mario Draghi um framtíð samkeppnishæfni Evrópusambandsins, sem birt var í september 2024, hefur haft veruleg áhrif á stefnu framkvæmdastjórnar ESB. Megináherslan er á að einfalda regluverk, auka fjárfestingu í nýsköpun og innviðum og draga úr því forskoti sem Bandaríkin og Kína hafa náð gagnvart Evrópu, meðal annars í framleiðni, fjárfestingu og tæknilegri þróun.

Þessi þróun skiptir Ísland beinu máli. Með EES-samningnum tekur Ísland þátt í innri markaði Evrópu og tekur upp stóran hluta þess regluverks sem gildir um atvinnustarfsemi á honum. Íslensk fyrirtæki starfa því að verulegu leyti eftir sömu leikreglum og fyrirtæki í aðildarríkjum ESB og keppa við þau á sömu mörkuðum.

Önnur svið tengjast Evrópusamstarfinu með öðrum hætti og gætu fengið sérstakt vægi í hugsanlegum aðildarviðræðum Íslands við ESB. Þar ber einkum að nefna sjávarútveg og landbúnað, sem falla að mestu utan gildissviðs EES-samningsins. Ákvarðanir ESB hafa engu að síður veruleg áhrif á samkeppnisstöðu þessara greina, meðal annars vegna tolla, viðskiptasamninga, reglna um matvæli og þeirra skilyrða sem íslensk framleiðsla þarf að uppfylla til að komast á innri markaðinn.

Vinnumarkaðurinn er þriðja mikilvæga víddin. Íslenska vinnumarkaðslíkanið stendur á sterkum grunni, líkt og vinnumarkaðskerfi annarra Norðurlanda, þar sem kjarasamningar og aðildarsamtök vinnumarkaðarins gegna veigamiklu hlutverki. Samhliða því hefur evrópskur vinnuréttur sífellt meiri áhrif á lágmarksvernd launafólks og félagslega vídd innri markaðarins.