Um höfundinn

Ingvar Sverrisson

Ég er lögfræðingur að mennt og starfa hjá Bandalagi háskólamenntaðra (BHM), þar sem ég fæst meðal annars við íslenskan vinnurétt, kjarasamninga og áhrif EES-reglna á íslenskan vinnumarkað.

Esbresso.is er sjálfstætt verkefni á mínum vegum. Efni sem birtist á vefnum endurspeglar ekki afstöðu BHM, einstakra aðildarfélaga bandalagsins eða annarra aðila til mögulegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu.

Tengjast á linkedin

Af hverju Esbresso?

Umræða um Evrópusambandið og tengsl Íslands við það verður gjarnan annaðhvort svo tæknileg að erfitt er að ná utan um hana eða svo einfölduð að mikilvæg blæbrigði og samhengi glatast.

Esbresso varð til til að brúa þetta bil.

Markmiðið er að fjalla á skýran, aðgengilegan og efnislega traustan hátt um samband Íslands og Evrópusambandsins: hvað Ísland hefur þegar tekið upp í gegnum EES-samninginn, hvað myndi breytast við aðild, hvaða valkostir standa til boða og hvaða rök mæla með og gegn þeim.

Vefnum er ekki ætlað að leiða lesandann að fyrirfram gefinni niðurstöðu. Markmiðið er að leggja fram upplýsingar, samhengi og ólík sjónarmið þannig að hver og einn geti myndað sér eigin skoðun á upplýstum grundvelli.

Esbresso útskýrir flókin mál á skýran og aðgengilegan hátt án þess að einfalda þau um of.